Kærleiksspil fyrir börn

2990 kr.

Umhverfisvæn spil og íslensk hönnun.
Fallegur partur af daglegu rútínunni eða skraut í herberginu til að sjá daglega.

Vörunr.: 065389 Flokkur:

Lýsing

Kærleiksspilin eru spil fyrir börn 2-12 ára, á spilunum eru uppbyggileg orð eða “affrimations” eins og margir þekkja þau á ensku.

Uppbyggileg orð eru til dæmis “Ég er glöð/glaður”, “Ég er hugmyndarík/ur”, Ég er elskuð/ elskaður”, “Í dag er góður dagur” ef ég nefni nú bara örfá, þá eru þetta meðal annara orða sem eru á spilunum ásamt fallegum myndum.

Spilin eru gerð til að kenna börnunum okkar að tala fallega til sín og styrkja sjálfstraustið. Við eigum að sýna þeim að það er eðlilegt og nauðsynlegt að hugsa vel um sig og til sín.

Hvernig skal nota spilin:

Mælum með að lesa spilin daglega, draga eitt spil á dag eða hengja þau upp þar sem börnin sjá og geta lesið daglega. Með þeim yngstu er gaman að lesa þau með þeim og segja þá við þau „Ég er…“ (ekki segja „þú ert“) og fá þau til að herma og tengja við myndirnar.

 

Innihald:

Stokkurinn inniheldur 19 uppbyggileg spil og eitt svokallaða kynningarspil. 20 spil í heildina.

 

Spilin eru gerð úr umhverfisvænum pappír og bleki. Hönnuð í sólarknúnni verksmiðju.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kærleiksspil fyrir börn”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *